Grunnnámskeið
Grunnnámskeiðið er ætlað öllum sem ekki tóku ekki hvolpanámskeiðið hjá okkur. Þeir sem að tóku hvolpanámskeiðið hjá okkur ættu að skoða námskeiðið "Framhald" eða "Hlíðni Grunnur".
Í tímunum eru að hámarki 6 hundar en að sjálfsögðu er öll fjölskyldan velkomin með á námskeiðið. Fáir hundar á hverju námskeiði gerir okkur kleift að sýna hverjum og einum hundi og eiganda athygli og leiðsögn.
Við notum jákvæðar þjálfunaraðferðir og umbun og hjálpum þér þannig að búa til sterkt samband og gangkvæmt traust manns og hunds.
Námið skiptist í bóklegt nám sem fer fram á netinu og verklegt nám
Námskeiðið skiptist í verklegt og bóklegt
Verklegt:
Allir verklegir tímar byrja á því að gera þær æfingar sem voru settar fyrir sem heimavinna og svo 2-3 nýjar æfingar sem að verða heimavinna fyrir næsta tíma. Farið verður yfir:
- Mikilvæg grunnatriði
- Að slaka á
- Sterkt innkall/neyðarinnkall
- Taumganga
- Setjast, leggjast, standa
- Að mæta fólki
- Að mæta hundum
- Meðhöndlun
- Að virkja hundinn
Bóklegt:
Bóklegi hlutinn fer fram á netinu í formi fyrirlestra en einnig verða þessi atriði rædd þegar við hittumst. Þú hefur aðgang að bóklega námsefninu í 10 vikur og getur horft hvenær sem þú vilt. Bóklegi hlutinn inniheldur meðal annars:
- Hvað er að læra
- Hvernig læra hundar
- Félagsmótun og umhverfisþjálfun
- Tenging manns og hunds
- Mismunandi þjálfunaraðferðir
- o.fl.
Lærdómsrík, jákvæð og skemmtileg samvinna
Harpa Hörn Helgadóttir
Eftir að hafa legið yfir netinu að finna rétta hvolpanámskeiðið og skoðað allt sem ég komst yfir á Youtube var mér bent á námskeiðið hans Villa og hans nálgun á þjálfun hvolpa, en ekki síður þjálfun okkar sem eigenda sem er jú aðal málið! Þvílíkur...
Read MoreEftir að hafa legið yfir netinu að finna rétta hvolpanámskeiðið og skoðað allt sem ég komst yfir á Youtube var mér bent á námskeiðið hans Villa og hans nálgun á þjálfun hvolpa, en ekki síður þjálfun okkar sem eigenda sem er jú aðal málið! Þvílíkur léttir fyrir okkur, og hundinn, að hafa dottið niður á hans leiðsögn sem gengur út á jákvæða og skemmtilega samvinnu við hundinn sem elskar að fá verkefni en ekki innantómar skipanir, þjálfunin verður leikur einn með Villa😉
Read Less